Beschreibung
Lind fasteignasala og Arinbjörn Marinósson lgf kynna eignina Mosgata 7, 210 Garðabæ sem er virkilega falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð í vönduðu fjölbýlishúsi sem byggt var 2018. Eignin skiptist í 104,7 fm íbúð með þvottahúsi innan íbúðar, góðum svölum og 6,5 fm sér geymslu í sameign, samtals 111,2 fm. Vandaðar HTH innréttingar og skápar ásamt vönduðum heimilistækjum. Eignin samanstendur af anddyri, þremur svefnherbergjum, eldhúsi, stofu, baðherbergi og þvottahúsi. *** 3 rúmgóð svefnherbergi *** *** Stórar svalir með rafmagnshiturum *** *** Hluti innbús getur fylgt með *** Nánari upplýsingar veitir Arinbjörn Marinósson Löggiltur fasteignasali, í síma 822-8574, tölvupóstur [email protected]. Nánari lýsing: Anddyri: Frá sameign er komið í rúmgott anddyri. Fatahengi og innbyggður fataskápur. Flísar á gólfi. Baðherbergi: Baðherbergið var tekið í gegn í Maí 2026. Skipt var um innréttingu, blöndunartæki og settur speglaskápur. Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, handklæðaofn og góð innrétting. Þvottahús: Þvottahús með innréttingu fyrir þottavél og þurrkara. Ræstivaskur. Flísar á gólfi. Eldhús: Vönduð HTH elhúsinnrétting með góðri eyju. Tæki frá AEG og Electrolux. Ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél. Parket á gólfi. Stofa/Borðstofa: Rúmgott alrými með stórum gluggum og útgengi á mjög rúmgóðar svalir. Parket á gólfi Svefnherbergi I: Rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp. Parket á gólfi. Svefnherbergi II: Gott herbergi sem nýtist vel. Innbyggður fataskápur. Parket á gólfi. Svefnherbergi III: Gott herbergi sem nýtist vel. Innbyggður fataskápur. Parket á gólfi. Svalir: Frá stofu er gengið út á rúmgóðar ca 13 fm svalir. Geymsla: Í sameign er sér 6,5 fm geymsla. Lóð: Vel hirt lóð í sameign. Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Falleg íbúð í vönduðu nýlegu fjölbýli staðsett örstutt frá útivistarperlu. Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma. ----------------------------------------------------------------------- Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. Sýna alla lýsingu (function(d, s, e, t){e=d.createElement(s);e.type='text/java'+s;e.async='async';e.src='http'+('https:'===location.protocol?'s':'')+'://cdn.adnuntius.com/adn.js';t=d.getElementsByTagName(s)[0]; t.parentNode.insertBefore(e, t);})(document,'script'); window.adn = window.adn || {}; adn.calls = adn.calls || []; adn.calls.push(function() { adn.request({ adUnits: [ { auId: '000000000004ea5f', auW: 310, auH: 400, requestParams: { load: 'lazyRequest', proximity: 100 } } ]}); });






























