Beschreibung
Um er að ræða vel skipulagt raðhús við Lækjarhvamm 3 í Hafnarfirði. Leiguverð: 550.000 kr. á mánuði. Trygging: 2 mánuðir greiðist fyrirfram sem trygging (mögulega bankaábyrgð) auk mánaðar leigu. Meðmæli nauðsynleg. Eingöngu reglusamt og reyklaust fólk. Til afhendingar 7. september 2023. Leigutími: Minnst 30 dagar og mest frá 7. september til 25. nóvember. Áhugasamir eru beðnir að senda tölvupóst á [email protected] með upplýsingum um væntanlega leigutaka hvað varðar atvinnu, fjölskyldustærð o.fl. Glæsilegt raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Fjögur góð svefnherbergi. Tvennar svalir út frá svefnherbergjum. Aðrar þaksvalir. Leigist með húsgögnum. Nánari Lýsing: Neðri hæð: Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi og fataskáp. Eldhús með flísum á gólfi, innréttingu og góðum eldhústækjum. Borðstofa með flísum á gólfi. Rúmgóð stofa með parketi á gólfi. Gott útsýni. Þvottahús. Bílskúr, innangengt frá þvottahúsi. Efri hæð: Gengið upp á efri hæð frá holi um parketlagðan stiga. Stórt svefnherbergi með glæsilegu útsýni. Geymsla inn af bílskúr.




