Description
Til leigu: Gott og vel skipulagt skrifstofuhúsnæði á efri hæð við Voginn - Stórhöfða 17 Reykjavík. Húsnæðið er mjög snyrtilegt og getur verið laust til afhendingar fljótlega. Innra skipulag býður uppá ótal möguleika varðandi skipulag. Nánari upplýsingar veitir Atli lögg. fasteignasali í síma 899-1178 eða [email protected] Nánari lýsing: Við núverandi skipulag telur eignin á neðri hæð góða móttöku, fimm stórar skrifstofur / fundarherbergi sem hver um sig getur rúmað margar starfsaðstöður, opið rými, tvær snyrtingar og geymslur. Efri hæð telur stórt skrifstofuherbergi, tvö opin skrifstofurými ásamt eldhúsi með borðkrók. Hægt er að opna og breyta innra skipulagi verulega þar sem mikið er um létta innveggi. Eignin er skráð samtals 384,3 fm, neðri hæð 292 fm og er milliloft skráð 92,3 fm.



