Description
Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse kynna: Vandað og vel við haldið fjölskylduhús í góðri staðsetningu við Daltún 17 í Kópavogi. Sjö svefnherbergi, þrjú baðherbergi, björt og opin rými, góð suður og austur verönd með heitum potti og skjólveggjum. Auka íbúð í kjallara með sér inngangi. Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, góðar gönguleiðir og stutt í almenningssamgöngur. Húsið er byggt 1985, skráð alls 304,4fm. Íbúðarrými 276,4fm og bílskúr 28fm. Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur [email protected] eða [email protected] NÁNARI LÝSING: Daltún 17 er vandað og vel við haldið einbýlishús á þremur hæðum auk bílskúrs. Stór og góð timbur og hellulögð verönd er í kringum húsið á þrjá vegu, suður, austur og vestur, með fallegu gróðri, uppbyggðum beðum, snjóbræðslu að hluta og heitum potti. 1. hæð 107,3fm Forstofa: Gengið er inn í flísalagða forstofu af suðurverönd, hiti í gólfi. Forstofubað Flísalagt, upphengt salerni, sturta, hiti í gólfi. Hol / gangur: Úr forstofu er komið inn í hol sem tengir saman 1. og 2. hæð með góðum stiga. Stór fataskápur. Úr holi er einnig gengið í kjallara. Skrifstofa/herbergi: Gengið er inn í rúmgott og bjart herbergi úr holi. Stofa / borðstofa: Björt og opin með parketi á gólfum og útgengt í sólstofu og þaðan í garð. Eldhús: Opið við stofu og borðstofu, parket á gólfi, hvít og beiki innrétting, ofn í vinnuhæð, tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél. Sólstofa 11,2fm: Gengið úr stofu/borðstofu, flísar á gólfi, gólfhiti, útgengt í garð. 2. hæð 72fm. Gólfflötur er mun stærri þar sem hæðin er að hluta undir súð. Hol: Komið er upp stiga í gott og bjart hol þaðan sem gengið er inn í önnur rými hæðarinnar. Tveir opnanlegir þakgluggar eru í þessu rými og gott og aðgengilegt geymsluloft. Parket á gólfi, hiti í gólfi. Svefnherbergi I: Hjónaherbergi með góðum fataskáp, parketi á gólfi, útgengt á suður svalir. Svefnherbergi II: Góður fataskápur, parketi á gólfi, svefnloft. Svefnherbergi III: Góður fataskápur, parketi á gólfi, svefnloft. Svefnherbergi IV: Parket á gólfi, útgengt á suður svali, möguleiki á að breyta í þvottaherbergi (allar lagnir og loftun til staðar). Hiti í gólfi. Baðherbergi: Flísalagt, góð innrétting og skápar, upphengt salerni, baðkar, þakgluggi, hiti í gólfi. Í herbergjum eru geymslurými undir súð sem nýtast vel og hafa gott aðgengi. Kjallari / auka íbúð 97,1fm. Komið er inn í íbúðina um sér inngang á norðurhlið hússins en einnig er innangengt af hæð. Anddyri/gangur: Flísar á gólfi, stigi upp á hæð. Þvottahús: Rúmgott, flísalagt, gott þurrk og geymslurými. Þvottahús er í dag nýtt fyrir allt húsið. Bað: Flísar á gólfi og veggjum, salerni, innrétting með vaski og sturta. Eldhús og stofa: eru í sameiginlegu opnu rými, innrétting með eldavél, dúkur og parket á gólfum. Svefnherbergi I: Rúmgott og bjart með góðum skápum, gluggum á tvo vegu, parket á gólfi. Svefnherbergi II: Minna herbegi sem í dag er nýtt sem geymsla, gluggar á tvo vegu. Bílskúr, 28fm: Rafdrifinni hurð, geymsluloft, góð vinnuaðstaða, vatn, 3ja fasa rafmagn, hleðslustöð. Framkvæmdir og viðhald á húsinu skv. núverandi eigendum. 2024 Ný vatnsrör þrædd í bílskúr. 2023 Hús málað að utan. 2022 Kjallari málaður að hluta, rafmagnstöflur endurbættar, 3ja fasa rafmagn dregið í bílsskúr og sett upp hleðslustöð. 2021 Bílastæði hellulagt og lögð snjóbræðsla 2020 Pallar og grindverk yfirfarin og máluð, hluti af gleri í sólskála endurnýjað 2018 Stigi á milli hæða teppalagður með vönduðu ullarteppi. 2017 Bílskúrshurð og gluggar málaðir. 2014 2. hæð endurnýjuð: Skipt um þak, járn, pappa, einangrun og timbur eftir þörfum. Milliveggir endurnýjaðir, geymsluháaloft smíðað og settur niðurdraganlegur stigi fyrir gott aðgengi, rafmagn endurnýjað, loft klædd, baðherbergi endurnýjað. Hiti settur í gólf á baði, holi og suðausturherbergi. Leiðslur lagðar og niðurfall sett í gólf (gert er ráð fyrir að hægt sé að hafa þvottaherbergi á efri hæð) Hæðin m






























