Description
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. íbúð á 2. hæð að Snorrabraut 35 í Reykjavík. Tekjumöguleikar, því í kjallara er um 11 m2 herbergi í útleigu með eldunaraðstöðu. Sameiginlegt salerni og sturta fyrir það er í sameign. Íbúðin er björt með gluggum bæði út í garð og út að Snorrabraut. Út frá svefnherbergi er rúmgóðar SA-svalir. Húsið er steinsteypt og hefur verið endursteinað. Einnig hefur þakjárn verið endurnýjað. Frábær staðsetning í hjarta miðbæjarins þar sem allt er til alls og göngufæri í Sundhöll Reykjavíkur og leik- og grunnskóla. Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / [email protected] Eignin skiptist í forstofuhol, tvær stofur, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, stúdíórými og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 95,5 m2. **HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN! *VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax Nánari lýsing: Forstofa er inn af mjög rúmgóðum teppalögðum stigagangi. Innan íbúðar er komið inn á stórt parketlagt hol. Innskot er fyrir yfirhafnir. Herbergi er mjög stórt og með innfelldum viðarfataskápum. Parket á gólfi. Útgengi er út á steyptar SA-svalir. Stofa og borðstofa eru samliggjandi með op á milli, en hefur verið lokað með léttum vegg og er annað stofurýmið nýtt sem herbergi í dag. Hægt er að opna að nýju. Parket á gólfi. Eldhús er með retro innréttingu á tveimur veggjum. Milli efri og neðri skápa eru flísar, sem og á gólfi. Ofn með helluborði og vifta fyrir ofan. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Baðherbergi er með hvítri innréttingu. Veggfestur spegill með ljósi. Baðkar með sturtu. Geymsla/Herbergi í útleigu og er 10,7 m2. Gluggi með opnanlegu fagi. Innrétting með vaski á einum vegg. Geymsla er sér, staðsett í kjallara. Hún er 4,4 m2. Þvottahús er einstaklega rúmgott, staðsett í sameign í kjallara. Hver með sínar vélar. Þvottasnúrur og skolvaskur. Í þvottahúsi er einnig sturtuklefi. Salerni í sameign fyrir útleiguherbergin í kjallara. Auka herbergi í sameign er í eigu allra. Það herbergi er í útleigu og fara tekjur þess inn í sjóð húsfélags. Garður er í porti aftan við hús. Grasflötur, malarplan og trjágróður. Ekið inn frá Grettisgötu. Hjólageymsla er í læstri geymslu úti í garði (undir svölum 1. hæðar). -Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá. -Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu. -Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða [email protected] Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali. 3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.- Sýna alla lýsingu (function(d, s, e, t){e=d.createElement(s);e.type='text/java'+s;e.async='async';e.src='http'+('https:'===location.protocol?'s':'')+'://cdn.adnuntius.com/adn.js';t=d.getElementsByTagName(s)[0]; t.parentNode.insertBefore(e, t);})(document,'script'); window.adn = window.adn || {}; adn.calls = adn.calls || []; adn.calls.push(function() { adn.request({ adUnits: [ { auId: '000000000004ea5f', auW: 310, auH: 400, requestParams: { load: 'lazyRequest', proximity: 100 } } ]}); });





























