Descrizione
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 eða [email protected] og Betri Stofan fasteignasala kynna: Nýbýlavegur 10c, 200 Kópavogi. Bókið skoðun hjá Jasoni, íbúðin er laus við kaupsamning. Stutt lýsing: Falleg 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (306) , samtals 86,6 fm. Lyfta. Bílastæði. Sérinngangur af svalagangi. Eignin skiptist í forstofu, 2 rúmgóð svefnherbergi með fataskápum, eldhús og stofu í opnu rými með suðursvölum, baðherbergi og sér þvotthús. Sérgeymsla er að stærðinni 9 fm. Nánari lýsing: 306 íbúð við Nýbýlaveg 10 C í lyftuhúsi byggt af JÁVERK . Íbúðin er á þriðju hæð. Fallegar innréttingar frá HTH, innbyggð uppþvottavél fylgir og AEG eldhústæki. Stæði í bílgeymslu fylgir eigninni. Húsið er álklætt og er leyfi til að loka svölum. Íbúðin er laus við kaupsamning. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu. Gengið af svalagangi í íbúð, glæsilegt útsýni þaðan til norðurs til fjalla. Forstofa með flísum og fataskáp. Þvottahús með flísum. 2 svefnherbergi með parketi og fataskáp, í aðalsvefnherbergi eru fleiri fataskápar. Stofa og eldhús eru í sameiginlegu rými með parketi á gólfi. Gengið er út á 6,6 fm suðursvalir frá stofu. Baðherbergið er flísalagt á gólfi og veggjum. Innrétting er við vask. Flísalögð sturta með glervegg. Húsið var byggt árið 2020 af JÁVERK . Við hönnun hússins var tekið mið af því að lágmarka viðhaldið. Húsið er einangrað að utan, klætt með sléttu og báruðu áli og gluggar eru ál-tré. Innréttingar og eldhústæki frá Ormson - HTH innréttingar. Flísar á baðherbergjum frá Álfaborg og innihurðir frá Parka. Húsið er staðsett miðsvæðis á höfðborgarsvæðinu. Í götunni er að finna Bónus, bakarí, veitingastaði, apótek ásamt annarri þjónustu. Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólasson, sími 7751515 [email protected] löggiltur fasteignasali. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Sýna alla lýsingu (function(d, s, e, t){e=d.createElement(s);e.type='text/java'+s;e.async='async';e.src='http'+('https:'===location.protocol?'s':'')+'://cdn.adnuntius.com/adn.js';t=d.getElementsByTagName(s)[0]; t.parentNode.insertBefore(e, t);})(document,'script'); window.adn = window.adn || {}; adn.calls = adn.calls || []; adn.calls.push(function() { adn.request({ adUnits: [ { auId: '000000000004ea5f', auW: 310, auH: 400, requestParams: { load: 'lazyRequest', proximity: 100 } } ]}); }); Betri Stofan Fasteignasala Borgartúni 30, 105 Reykjavík 5190100 betristofan.is






























