Опис
Pálsson Fasteignasala kynnir:Rúmgóð efri sérhæð að Austurgerði 6 á Kársnesi í Kópavogi. Eignin er skráð 157,8 fm og er á 2. hæð í grónu og fjölskylduvænu hverfi. Pálsson fasteignasala kynnir í einkasölu rúmgóða og vel skipulagða 6 herbergja efri sérhæð við Austurgerði 6 á Kársnesi í Kópavogi. Eignin er 6 herbergja með fjórum svefnherbergjum, tveimur stofum, einu baðherbergi og þvottahúsi innan íbúðar. ** 4 svefnherbergi ** 2 stofur ** Sér þvottahús ** Fjölskylduvæn staðsetning á Kársnesi ** Búið að skipta um þak Birt stærð er 157,8m2. Nánari upplýsingar veita: Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða [email protected] Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða [email protected] www.eignavakt.is www.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur Eignin skiptist í forstofu/anddyri, hol/fjölskyldurými, stofu/borðstofu, eldhús, 4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Nánari lýsing eignar: Forstofa/anddyri er rúmgott og tekur vel á móti með góðu plássi fyrir fatahengi og geymslu. Hol/fjölskyldurými er miðsvæðis í íbúðinni og hentar vel sem sjónvarpshol, leikrými eða vinnuaðstaða. Stofa/borðstofa er rúmgott samverurými með góðu plássi. Eldhús er í góðum tengslum við borðstofu og býður upp á góða aðstöðu og skápapláss. Þvottahús er sér innan íbúðar með aðstöðu fyrir þvottavél/þurrkara og auknu geymslu- og vinnuplássi. Hjónaherbergi er rúmgott með miklu skápaplássi Svefnherbergi 2 er með fataskáp og nýtist einnig vel sem skrifstofu- eða gestaherbergi. Svefnherbergi 3 er með fataskáp og góðu plássi fyrir barnaherbergi eða vinnuaðstöðu. Svefnherbergi 4 er með fataskáp og nýtist vel sem svefn- eða vinnurými. Baðherbergi er rúmgott og snyrtilegt. Bílskúr er samtals 28fm Fjölskylduvæn eign á góðum stað nálægt leik- og grunnskóla og allri helstu þjónustu, verslun og samgöngum. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Sýna alla lýsingu (function(d, s, e, t){e=d.createElement(s);e.type='text/java'+s;e.async='async';e.src='http'+('https:'===location.protocol?'s':'')+'://cdn.adnuntius.com/adn.js';t=d.getElementsByTagName(s)[0]; t.parentNode.insertBefore(e, t);})(document,'script'); window.adn = window.adn || {}; adn.calls = adn.calls || []; adn.calls.push(function() { adn.request({ adUnits: [ { auId: '000000000004ea5f', auW: 310, auH: 400, requestParams: { load: 'lazyRequest', proximity: 100 } } ]}); });






























